sunnudagur, febrúar 25, 2007

Loksins loksins

sáum við enda á framkvæmdunum. Veggurinn farinn, 3 lítrar af sparsli, slatti af múr, flotefni og málningu búið að sletta á hér og þar og nýtt parket komið á íbúðina. Eina sem eftir er gólflistavinna og svo að koma húsgögnum og dóti á sinn stað. Ótrúlega gott að geta loksins verið heima án þess að þurfa að klofast yfir húsgögn útum allt og standa í og anda ryk að sér. Stúdentagarðs fílingurinn var ekki að gera sig á þessu heimili, það er ekkert gaman að búa í einu herbergi troðið af dóti. Við höfum víst haft brenglaðar minningar frá stúdentgarðs vistinni okkar, okkur minnti að það hefði verið svo fínt að búa þar eða var það kannski ekki.......... Síðasta vika var svefnlaus vegna láta í bumbus og þar ofan á bættist við brjáluð vinna bæði í vinnunni og í skólanum, sé reyndar ekki fram á að það breytist næstu tvær vikunar en vonandi fæ ég að sofa í friði fyrir bumbus. Við erum allavega búin að fá heimilið okkar nokkuð vegið til baka :)

Ég set myndir af breytingunum þegar búið er að leggja loka hönd á verkið.......eða kannski ekki, kannski verið þið bara koma í heimsókn ef þið viljið sjá þetta. Það er alltof langt síðan ég hef séð mörg ykkar.

 
hits.