mánudagur, febrúar 12, 2007

Hvernig vissum við ?

Gat ekki annað en að e-ð kæmi upp. Maðurinn sem við keyptum af varð að minna okkur á hvað hann væri mikill fáviti, eflaust heimskasti maður sem ég hef hitt. Ætla nú ekki að fara rekja okkur sölusögu vegna galla í íbúðinni. En auðvitað varð að koma fleira í ljós fyrst við byrjuðum að krukka í þeirri vinnu sem þessi maður lagði í íbúðina þegar hann gerði hana upp fyrir 2 árum. Rifum parketið upp og viti menn var ekki þessi fína bleyta þar undir með tilheyrandi fúkkafýlu og er þetta greinilega ekkert nýtt og e-ð sem hefur ekki getað farið framhjá honum þegar hann lagði nýtt gólf á. Spurning að hringja í hann svo hann geti sagt okkur að þetta er nú ekkert sem smá sparls og málning getur ekki lagað eins og hann hefur bent okkur á vegna fyrri galla.

 
hits.