Búið er að tengja heimasíman aftur, þið sem hafið hringt í hann þá varð það ekki vegna þess að við vildum ekki tala við ykkur heldur þurftum við að aftengja hann vegna þess hann var í veggnum sem við rifum niður. Vegna anna, leti og þreytu þá erum við ekki alveg búin að koma hlutunum í stand. Set inn myndir af íbúðinni bráðlega.
Vinnuhelgi á Bifröst um helgina og jafnframt sú síðasta í bili allavega. Klára síðasta áfangann eftir 2 vikur og þá verður kátt í höllinni. Engin samviska að naga mann yfir því að vera ekki að læra öll kvöld og allar helgar.
Afmæli í næstu viku
Og Bumbus eftir 5-7 vikur