föstudagur, desember 08, 2006

Fyrsta og hinu eina prófi lokið þessa önn. Var svo heppin að næla mér í einhverja pest. Týpist ég að vera veik þá daga sem ég þufti að læra undir prófið. Get ekki sagt að mér hafi gengið vel arg arg en ef illa fer þá tek ég það upp aftir í janúar :O( Þar sem þetta var ekki kjaftafag þá býst ég vel að svo verði.

Manchester var blaut og köld en þó var gaman. Hittum tengdafjölskyldur Palla og kiktum í búðir.

Í ár er fyrsti desember mánuðurinn síðan 2001 sem ég verð ekki að vinna í Kringlunni eða Smáralind. úff ég fæ hroll við tilhugsina að þurfa vinna til 10 flest kvöld í gargandi verslunarmiðstöð. Ég ælta sko að njóta þess að vera búin að vinna kl 16/17 og eiga frí öll kvöld og slappa af. Himmi er búin að taka við af mér varðandi verslunarstörfin og fær hann að upplifa að jólaverslunnina í ár.

Á morgun er svo jólahlaðborð Flugfélagsins. Nokkrar af okkur stelpunum á skrifstofunni erum búin að plana hitting á morgun þar sem við erum búnar að panta stelpu til að farða okkur og gera okkur sætar áður en haldið er í kokteil og í matinn.
Venjulega hefur jólahlaðborðið endað með ósköpunum, hauga fyllerí og slagsmál milli hlaðdeildarinnar og flugmannanna. Ætli það bregði nokkuð af venjunni í þetta skipti.

Bumbus er orðinn nokkuð sprækur og er duglegur að hreyfa sig. Hann er samt ekki byrjaður að hreyfa sig eða sparka það fast að það sjáist eða finnist utan frá. Himmi fær ekki að finna neitt eins og er.

 
hits.