laugardagur, desember 16, 2006

Litla langveika Birta okkar var hjá lækni í gær þar sem hún er fastagestur. Hún var í eftirskoðun þar sem fyrir þó nokkru fóru spenanir á henni að vera þrútnir og Birta öðruvísi en hún var vön að vera. Þar sem það er allt að Birtu þá fórum við að ímynda okkar það versta og dýralæknirinn vissi ekki hvað gæti verið að þar sem það er svo margt að henni. Hún fór aftur í gær, komumst við þá að því að hún hafði verið gervi ólétt. Miðað við útreikninga þá hefði hún orðið "hvolpafull" í september og væri núna búin að "eiga" og er komin með mjólk í spenana. Litla greyið, kannski þetta tengist eitthvað því að ég sé ólétt og hún hafi orðið það með mér.

 
hits.