jebb jebb nóg að gerast en samt geri ég ekki neitt og nenni ekki neinu. Skil ekkert í verkefninu sem ég þarf að skila á föstudaginn og er ekki heldur að gera neitt í þvi að reyna að skilja það, spurning að hella sér í bókalestur og reyna að leysa þennan ands%&$#$a. Er í reiknings og tekjuhaldi og þeir sem þekkja mig vel vita að ég nota venjulega ágiskunar aðferð þegar kemur að stærðfræði. Nema í þessum áfanga virkar ágiskunaraðferðin mín ekkert rosalega vel. Ekki gott þar sem stæ er ekki mín sterkasta hlið......... Er svo að fara í loka próf í þessu 8 des og hef ekki verið að gera neitt til þess að undirbúa mig fyrir það heldur. Svona er að vera Herdís í skóla. Ég ætla greinilega ekki að læra að reynslunni gerði þetta líka öll mín yndislegu ár í Háskóla Íslands. Allt gert á síðustu stundu með stressi og látum. Sem betur fer er þetta bara eitt próf en gvuð hjálpi mér á næstu önn ef ég held sömu vinnubrögðum áfram.
Við erum svo að fara til Manchester um helgina að heimsækja Doktor Palla og Roland.Þeir eru fluttir frá London svo það er ekkert annað fyrir okkur en að skoða ný mið enda var Lodnon orðin ansi þreyttur áfangastaður.
Palli var að klára doktorsnámið sitt og ætlum við að ásamt ma og pa að hylla hann í tilefni þess. Þar sem við förum til USA síðustu mánaðarmót þá held ég að við höldum okkur á mottunni varðandi verslun, enda vantar okkur ekki neitt.
Bergþóra bróðurdóttir mín er 4 ára í dag. Til lukku með daginn litla krús !