Komnir 3 mánuðir síðan við komum heim úr interrailinu og ég er enn ekki búin að skoða myndirnar sem við tókum almennilega. Aðalega því þær eru svo ógeðslega margar. Ég er byrjuð að rúlla niður þær og var að skoða Rússlands myndirnar. Ótrúlegur staður. Myndin hér að neðan er af kirkju í St Petersburg sem við skoðuðum. Ein flottasta kirkja sem ég hef farið í. Hún var öll gerð úr mósaík að innan og var nýlega búið að opna aftur eftir yfir meira en 20 ára viðgerðir. 
föstudagur, október 07, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli