miðvikudagur, október 05, 2005

Komin heim frá London. Einhver smá ólukka fylgdi okkur en annars var ferðin bara fín. Þurftum að skipta um vél í Keflavík vegna bilunar. Vorum búin að bíða í meira en klukkutíma eftir að fara af stað og svo vorum við bara rekin út úr vélinni og okkur sagt að það kæmi önnur vél eftir 1.5 tíma. Vorum listuð á kvöldvélina á mánudaginn til baka. Eftir rölt og fínerí á mánudeginum ákvaðum við að fara tímanlega til baka á Barons court til að pakka og svoleiðis. Svo kemur Roland heim og Himmi fer og ætlar að opna fyrir honum. Það gengur ekki betur en það hann læsir lás sem mátti alls ekki læsa ( hann var bilaður) Roland læstur úti og við vorum læst inni og rúmir 3 tímar í flug. Allir glugga í íbúðinni pínulitlir og með rimlum fyrir utan og einungis einn inngangur í íbúðina. Við reyndum að pikka lásinn einhvern vegin upp en ekkert gekk allt pikkfast. Eftir hamagang á hurðinni í meira en klukkutíma þá varð okkur ljóst að lásinn ætlaði ekki að gefa sig og við þyrftum að grípa til einhverja ráða. Enduðum á að brjóta upp dyrakarminn í kringum lásinn og náðum að sparka hurðinni svo upp eftir meira en 2 klukkutíma baráttu við blessaða lásinn. Blessunarlega náðu við á flugvöllin í tæka tíð og fengum sæti. Hef oft verið læst út en aldrei verið læst inni og ekki séns að komast út. Eftir að að hafa stórskemmt dyrakarminn á íbúðinni rukkum við út í hamagangi til að ná flugvélinn og skildum Palla og Roland eftir með ónýta hurð :o( Skemmtilegir gestir.

 
hits.