þriðjudagur, október 11, 2005

ójj leiðinlegur dagur í dag. Ekkert að gera í vinnunni, skítkalt og ég þarf að dröslast niður í Landsbanka á eftir í Bankastræti. Landsbankinn er búinn að vera að hringja í mig í marga mánuði og biðja mig um að koma til að endurskipuleggja fjármál mín. Er í námunni sem er fyrir námsmenn en þar sem ég er ekki námsmaður lengur þá má ég ekki vera með þennan reikning lengur samkvæmt þeim. Reyndi að segja þeim það að það eina sem mig vantar er að hafa debetkorta reikning og það hlyti nú vera hægt að breyta þessu námureikning í venjulegan reikning í gegnum síma, nei þeir vilja að viðskiptavinir sýnir fái góða þjónustu og vilja fara yfir málin með þjónustufulltrúa til að finna hvað henti hverjum og einum sem best. Dísus, vesen nenni ekki að standa í þessu- allavega eftir margra mánaða símtöl frá bankanum sagði ég já við þá og á viðtal við þjónustufulltrúa kl 16 á í dag. veit ekki alveg hvað bankinn ætlar að gera fyrir mig. Ég skulda ekki neitt, á ekki íbúð, er ekki að borga nein lán eini reikningurinn sem ég fær er símareikningur og visa reikningurinn. Símreikningurinn fer sjálfkrafa á visakortið og visareikningurinn greiðist sjálfkrafa af debetkortinum mínu. Þetta gæti ekki verið einfaldara og mig vantar alls ekki þjónustufulltrúa !

 
hits.