Ætluðum að fara norður og vera þar um helgina en hættum við það á síðustu stundu og ákváðum bara að vera heima til tilbreytinga. Ma & Pa eru í London fram að þriðjudag svo við Himmi erum í hundapössun. Birtu & Úa eru mjög ánægðar að við höfðum hætt við að fara norður því þær áttu að fara á hundhótel. Næstu helgi ætlum við að ganga Fimmvörðuhálsin og eyða helginni í Þórsmörk. Ætlum að fara frá Skógum föstudagskvöldið og ganga yfir um nóttina. Vonum að fá við fáum þokkalegt veður. Svo eigum við von á kristinboðanum fyrir verslunarmannahelgina og ætlum við að reynað skipuleggja einhverjar ferðir fyrir hann. Förum líklegast í útilegu í Þjórsárdal og Skaftafell um versló svo á Snæfellsnes helgina eftir. Ef einhver vill koma með í útilega þá eru allir velkomnir með!