Ganga yfir Fimmvörðuháls
Ætlaði aldrei að geta vaknað í morgun til að mæta í vinnu. Ætlaði að mæta kl 8 en druslaðist ekki á fætur fyrr en rétt fyrir 9 sem þýðir að ég er ekki búin að vinna fyrr en 17:00. Er alveg líkamlega búin eftir helgina. Fórum strax eftir vinnu með rútu að Skógum þar sem við lögðum af stað í Fimmvöruháls gönguna. Lögðum af stað í gönguna frá Skógum kl 20:00. Ferðin byrjaði vel eða þannig, rétt komst upp stigan meðfram Skóga fossi, var algerlega búin eftir að gengið upp tröppurnar. Hugsaði bara með mér hvað í ands&%$ er ég búin að koma mér. Ekki byrjuð í göngunni og alveg á öndinni. Eftir smá hvíld þá gat ég haldið áfram, ferðin var svo sem ekkert erfið fyrstu 5 tímana en síðari hlutinn þegar þreytan var byrjuð að segja til sín var þetta orðið ansi stembið. Við fengum rigningu á köflum og þoku en annars var fínt veður, leiðinlegast var að vera alltaf að klæða sig í og úr regnfötunum. Of heitt að vera í þeim þegar það rigndi ekki og of blaut og kalt þegar það rigndi að vera ekki í þeim. Eftir 5-6 tíma göngu þá vorum við loksins hálfnum og líka alveg uppgefin, héldum að þessu ætlaði aldrei að ljúka. Vegna þreytu og erfiðra göngustíga þá hægðist heldur betur á okkur og við vorum ekki komin niður að Básum í Þórsmörk fyrr en um 6 um morguninn. Vorum 10 tíma að labba þetta og þunna tjaldýnan og svefnpokin sást í hyllingum. Förum að sofa um 7 og sváfum langt fram að dag, vöknuðum til að borða og svo héldum við áfram að sofa. Vöknuðum um 8 um kvöldið stirð og með stengi. Kjöt var sett á grillið og áfengið dregið upp og svo vara bara drukkið fram á nótt.
Frábær ferð þó svo hún hafi verið ansi erfið. Vel þess virði, ótrúlega fallega gönguleið. Á sunnudeginum var bara slappað af og beðið eftir farinu í bæinn.