Ísland
Komin heim eftir mánaðar ferðalag. Komum aðfaranótt föstudags og svo var brunað beint til Akureyrar á föstudeginum og farið á ættarmót í Aðaldal. Komum svo heim á Eggertsgötuna seint í gærkvöldi. Frekar mikil viðbrigði að vera mætt í vinnu aftur, margt sem þarf að rifja upp og koma sér aftur í vinnugír.
Interrailið heppnaðist rosalega vel og vorum við ótrulega heppin með allt nema veður. Við fórum til 12 landa, af þeim voru 3 lönd í vestur evrópu, Austurríki, Þýskaland og Danmörk. Frekar mikil viðbrigði að koma til þessara landa, bæði menningarlega og verðlega séð eftir að hafa verið í svona mörgum fyrrum Austantjalds löndum.