Kristniboðinn er kominn
Ástralinn er kominn til okkar. Sótti hann á BSÍ á fimmtudaginn og byrjuðum á því að fara með hann í Bónus og Ríkið til að versla fyrir helgina. Fyrsta menningarsjokkið hans var að sjá verðið á bjórnum. Held að hann sé búin að vera í hálgferðu sjokki síðan á hann kom hingað. Við brunuðum norður eftir vinnu á föstudaginn. Tjölduðum á Þóroddstöðum, í nýja 3 herbergja tjaldinu okkar, þar sem foreldar Himma eiga hús í Þingeyjarsýslu. Eyddum laugardeginum við Mývatn, fórum í Jarðbaðið og túristuðumst. Um kvöldið var svo fjöldskyldusamkoma á Þóroddstöðum þar sem var grillað og seinna um kvöldið var svo ekta íslenskt hlöðuball með tilheyrandi fylleríi. Ástralinn var ferkar gáttaður á háttalagi okkar en hafði samt gaman að. Á sunnudeginum var svo pakkað í hræðilegri þynnku og haldið af stað til Akureyar þar sem við rúntuðum um og gáfum honum Brynjuís enduðum kvöldið á því að horfa á ofurdrukkna unglinga og flugeldasýningu á Akureyrarvelli. Á morgun tekur svo við vinnan svo hann verður að hafa ofan sér sjálfur fram að föstudag, vonandi deyr hann ekki af leiðindum hérna. Held að hann hafi skoðað nánast allt á fimmudagskvöldinum og á föstudaginn. Við erum svo að hugsa um að elta sólina eitthvert og fara í útilegu næstu helgi. Líklegast síðasta ferðalagið í sumar þar sem því fer að ljúka og Himmi á síðasta séns að skrifa ritgerðina sína.