miðvikudagur, nóvember 10, 2004

Kinoabend

Fór í bíó á mánudaginn, mín fyrsta bíóferð hér í Þýskalandi og eflaust sú síðasta. Fórum í Mike’s Kino sem er eina bíóið í bænum, sjáum “Die Kinder des herr Mathieu” Frönsk mynd með þýskutali. Var reyndar nokkuð góð. Myndin byrjaði kl 19:45, klukkan 19:30 erum við mætt í Mike’s kino. Biðjum um miða, zweimal, Bitte ! þá spyr konan í afgreiðslunni, Haben Sie Reseviert? Ég: Entschuldigen, ehhh Nein Wir haben nicht Reserviert ! Konan lítur þá á okkur með furðusvip, hugsaði örugglega hverskonar vitleysingar við værum að mæta án þess að eiga pantaða miða. Segir svo: Sie haben Glűck og lætur okkur fá miða. Fengum miða í 5 röð, í sætum 41 og 42. Fórum svo í sjoppuna, ég bið um kók og konan lætur mig fá kókglas í gleri! Held á þessu glasi eins og hálfviti, David að springa úr hlátri. Við lítum svo í kringum okkur þá eru flestir með rauðvín, hvítvín og bjór í glösum. Mér leið eins og ég væri í leikhúsi í gallabuxum og með húfu. Komst að því daginn eftir að þú ákveður ekki allt í einu að fara í bíó eins og við höfðum gert, allavega ekki í Prien. Í Prien ákveður fólk að fara með fyrirvara og pantar miða og velur sér sæti eins og það sé að fara í leikhús

 
hits.