Schnee
Það snjóaði í gær og í morgun, spáð er snjókomu alla þessa viku. Ég byrjaði í nýjum bekk í síðustu viku. Við erum 14 í bekk, miklu skemmtilegri en sá síðasti. Sé það núna að hinn bekkurinn var alltof auðveldur. Hef nánast lært jafn mikið á einni viku í nýja bekknum og ég gerði á 4 vikum í hinum bekknum. Ekki gott :o( Annars er mest lítið að frétta. Prien er farinn úr sumarfötunum í vetrafötinn. Það er búið að loka ísbúðinni (einu skemmtunina), taka niður "Bæjarstöngina" og setja hlera yfir gluggana á sumum húsum. Enda er þetta sumarstaður og flest allt er lokað á veturnar. Við ætlum til Prag í næstu viku yfir eina helgi, það verður gaman. Annars er ekkert annað planað, búin að fara í allar aðrar ferðir sem boðið er upp á . Sama prógramið gengur hvern mánuð :o( Var kannski aðeins of akktív síðasta mánuð hefði átt að geyma e-ð þangað til núna. Jæja þarf að fara læra og vinna - er í fjarvinnu frá Flugfélaginu.
Bis Spater !