fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Eins og mig var farið að hlakka til helgarinnar og fara til Prag þá aflýstu þessir aular hjá Goethe ferðinni að ástæðulausu !! Jæja, við ætluðum þá bara skipuleggja aðra ferð og vorum búin að ákveða að fara til Feneyjar, Ítalíu. Búin að finna gistingu og gott verð fyrir lestina. Nei þá hættu 3 að fara svo við getum ekki farið nema borga ca 20.000 meira því að verðið sem við fengum miðaðist við ákveðinn lágmarks fjölda. Þannig að það verður bara Þýskaland og Austurríki um helgina. Ætlum bara að kíkja í dagsferð á laugardaginn til Nurnberg og á leiðinni þangað stoppa í Dachau þar sem ein helsta útrýmingarbúð Nasista var og skoða safnið sem er þar. Held samt að Prag eða Feneyjar hefði verið meira spennandi. Á morgun ætla ég til Salzburg með Goethe, ætlum að fara á tónleika og e-ð. Það verður eflaust fínt.
Veturinn er farinn, allavega í bili – kemu örugglega aftur á laugardaginn þar sem það er alltaf leiðinlegt veður um helgar hérna. Það var búið að vera skítkalt og snjór s.l. tvær vikur en svo tók veðrið upp á því að senda okkur sól og hita. Það er búið að vera ca.10 stiga hiti síðustu daga og allur snjór farinn meira segja í fjöllunum í kringum Prien. Hlakka ekki til að koma heim í kuldann. Væri til að vera hérna lengur en ég verð að fara heim og knúsa Himma

 
hits.