brjóst og rassar
ojj hvað það er búið að vera leiðinlegt í vinnunni. Ný sending kom á föstudag og auðvitað var ekki gengið frá henni um helgina þegar ég átti frí. Þannig þegar ég mætti á þriðjudaginn nota bene 4 dögum eftir að vörurnar kom var ekki búið að hengja upp eitt stykki. Bara að þið vissu hvað það er leiðinlegt að taka upp úr þessu bévítast kössum. Fyrst þarf að telja allt til að athuga hvort allt stemmir við pöntunina og farmskránna, svo þarf að taka Eitt númer af hverju brjóstahaldara og ÞRJÚ númer af hverju buxum og það er ekkert smá magn !!!! Þar sem það eru 3 gerðir af hverjum buxum í hverji einastu týpu og 5 númer gera það 45 stk í hverji týpu fyrir sig og svo eru tvær gerðir af brjóstahöldurum í öllum týpum í 25 númerum sem gera 50 brjóstahaldara bara í einni týpu. Í Þessari sendingu komu 18 mismunandi týpur !!! Sem sagt í stuttu máli þá þarf ég að hengja upp 810 nærbuxur og 900 brjóstahaldara. Byrja þarf á að rífa allt þetta helvíti úr plasti, finna verð, setja þjófavörn setja á herðatré og svo finna stað í búðinni til að hengja þetta allt upp sem þýðir venjulega að það þarf að umturnar allri búðinni því að þessi litur passar ekki við þennan lit.......ojj ojj leiðinlegt ! Ég mæti á þriðjudag og ekkert búið að gera ekkert pirrar mig eins mikið og ólokin verk svo ég ákveð að drífa þetta bara af náði að ganga frá 1/3 á þriðjudeginum mæti svo klukkan 2 í dag, verslunarstjórinn búin að vera í búðinni í 4 tíma og ekki ein sala í kassanum og er ekki búin að hengja eina einustu brók upp! Búðin í rúst og hún situr bara framan við tölvuna á msn. Þar sem verslunarstjórinn ætlar greinilega ekki að hreyfa á sér rassinn þá varð ég víst að reyna að ganga frá búðinni og tókst mér að ganga frá öðrum 1/3 í dag svo 2/3 eru búnir. Þarf ekki að mæta í vinnuna fyrr en klukkan 5 á morgun svo ég bíð spennt yfir að sjá hvort búið sé að ganga frá restinni eða hvort ég þurfi að gera það.