föstudagur, apríl 30, 2004

Ég verð ekki atvinnulaus í sumar

Fór í atvinnuviðtal hjá Flugfélagi Íslands á miðvikudag. Fékk svo hringingu í dag þar sem þau buðu mér framtíðarstarf. Starfið er í tour deski markaðsdeildarinnar og mun ég sjá um öll samskipti við erlendar ferðaskrifstofurnar og ganga frá bókunum og eitthvað svoleiðis. Á að mæta á fund í næstu viku þar sem ég fæ frekari kynningu á starfinu. Gaman gaman, spennandi að byrja að nýju starfi :o)

 
hits.