Búin í prófunum sem var reyndar bara eitt. Þetta var heimapróf sem var skítlétt. Ég hefði betur sleppt því að hafa einhverjar áhyggur af því og eitt orkunni í eitthvað annað. Himmi var í sama áfanga svo við fórum til ma & pa þar sem við gátum verið með tvær tölvur tengdar við netið og gerðum bara prófið saman. Þar sem við erum blankir námsmenn þá keyptum við bara eitt sett af lesefninu fyrir námskeiðið, og svo skiptum við því í tvennt þegar við byrjuðum að lesa fyrir prófið. Þegar við vorum búin að lesa sitthvorn helmingin af greinunum þá nenntum við ekki að læra meira. Já metnaðurinn í náminu er alveg að fara með okkur... Þannig að ég kunni bara helminginn af efninu og Himmi hinn helminginn sem kom okkur svona ansi vel á prófinu sjálfu.
Er enn ekki búin að fá að vita hvað verður um sumarvinnuna mína, þeir segja að ég fái pottþétt vinnu ef rekstri skrifstofunar verðir haldið áfram. Góð svör þú færð kannski vinnu eða kannski færðu ekki vinnuna, það hjálpar mér bara ekki neitt, Arrrrrg!!! Þó svo ég vildi helst vera bara hjá Hópferðabílum í sumar þá ætla ég ekki að taka neina sénsa á því að vera atvinnulaus í sumar og sótti um hjá Flugfélag Íslands í dag og fer í formlegt starfsviðtal á morgun. Ég sótti um sumarstarf en sú sem ég talaði við vildi endilega að ég sækti eftir öðru starfi sem væri framtíðarstarf. Vona að þessu atvinnumál farir að leysast fljótt.