sunnudagur, apríl 25, 2004

Próf á morgun

og að sjálfsögðu hef ég lítið sem ekkert lært. Það væri mér líkt að falla í þessu eina prófi sem ég tek að þessu sinni og þar með ekki útskrifast!! Bsinn gengur bara nokkuð vel, loksins búin að fá spurningalistana til baka svo nú er bara að finna einhverja niðurstöður úr þeim og svo skrifa lokaorð. Bíð enn eftir að fá að vita hvort sumarvinnan mín fái að lifa. Væri það ekki toppurinn á tilveru minni að fá að vita með engum fyrirvara um að ég hafi ekki lengur vinnu og verði atvinnulaus í sumar..........eða þannig. Kolkrabbinn á Akureyri er á góðri leið að sneiða niður flest ferðamálafyrirtæki og þar á meðal fyrirtækið sem ég hef unnið hjá og þar með gera mig atvinnulausa.

 
hits.