Já er svo löngu löngu hætt að skrifa eitthvað almennilegt hérna inn, þessi síða hefur verið meira svona öpdeit á sjálfum mér fyrir þá sem ég hitti sjaldan. Sem sagt lítið um blogg eins og það á að vera. Það verða engar hugleiðingar í þessari færslu í þetta skipti en aldrei að vita að ég fari að breyta því.
Lífið snýst helst um að finna lit á bévítans húsið okkar, get engan vegin ákveðið þetta. Ef við tökum ekki skarið þá verður húsið aldrei málað. Ég er eiginlega búin að fá leið á því að búa í ljótasta húsinu í götunni. Í fyrra sumar brutum við stóran hluta af múrhúðinni vegna skemmda svo það er allt flekótt þar sem nýja pústningin var sett. Kannski ég fái Heiðar snyrti til að kíkja til okkur og litgreina húsið eða spékingana í innlit útlit.
Annars er búið að vera nóg að gera i júli, útskrift, Nördaleikur, brúðkaup afmæli, útileiga eiginlega of mikið. Svo danaferðin á þriðjudaginn svo það lítur út fyrir það að við munum áfram eiga ljótasta húsið í götunni.
miðvikudagur, júlí 18, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Drífið í þessu !! Þetta er ekki svona flókið. Bara ekki velja of dökkan lit á viðinn í gluggunum því það er vont fyrir hann þegar sólin skín.
Fáið ykkur rúnt og finnið hús sem er vel málað- takið myndir af því og látið litgreina í málningarvörubúð og málið ykkar eins ;)
Kv. Hugrún :)
Hæ sæta.
Heyrðu ég er flutt í Dynsali, hvað segiru um að kíkja í heimsókn ja eða kíkja í Salalaugina með litla prins ?
Heyrumst!
Skrifa ummæli