Ótrúlegt en satt þá hef ég fengið lit á mína ofur hvítu húð og það skal ég segja ykkur gerist ekki oft. Mér hefur liðið eins og að vera í útlöndum síðustu daga, Við mæðginin höfum notið sumarblíðunar og farið í margar göngferðir um Kópavoginn. Hef ég komist að því að ég þekki hverfið voða lítið sem við búum í. Kópvogur hefur verið þekktur að hafa götukerfi eins og völundarhús og eru göngustígarnir engin undantekning. Það eru göngustígar útum allt hérna sem ég hafði ekki hugmynd um, faldnir milli húsana hér og þar.
Vonandi verður sumarið áfram svona gott svo við Arngrímur getum haldið áfram að kanna Kópavog.
þriðjudagur, júlí 03, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Þú færð aldeilis draumaveðrið til að vera í fæðingarorlofi !! Besta sumar í Reykjavík í mörg ár ;)
Giska á að þú sért vel brún núna, um að gera að nýta sér sem oftast gönguferðir í góða veðrinu :)
Ég er laus á sunnudaginn og svo um þarnæstu helgi ef þig skyldi langa í gönguferð :)
Skrifa ummæli