miðvikudagur, janúar 31, 2007

og litli bumbugrísinn stækkar og stækkar

Hef talið vikunar samviskusamlega og fylgst með hvað eigi að gerast í hverju viku í þroska barnsins. Fyrst var beðið eftir að 12 vika kæmi, fórum í fyrsta sónarinn þá, sónar númer 2 var á 20 viku svo beðið var eftir að 20 vika kæmi. Eftir 20 viku fór bumbus líka að stækka og sprikla og bumban að dafna en eftir 24viku þá hætti ég að fylgjast með hvaða viku ég væri komin á. Búin að fara í sónar, kúlan komin og bumbus byrjaður að hreyfa sig eiginlega allt komið það sem maður beið spenntur eftir að upplifa. Áttaði mig á því í gær að núna eru komnar 30 vikur og bara 10-12 vikur eftir. Þessar vikur eiga eflaust eftir að vera heila eilíf að líða en samt er þetta alltof stuttur tími eftir. Á eftir að klára alltof mikið í skólanum, rífa niður veggi og parketleggja það er eins gott að spýta í lófana og fara að framkvæma.

 
hits.