Bömmer með blogger og hans nýju útgáfu.
var búin að skrifa helling en týndi svo færslunni. Nenni ekki að skrifa þetta allt aftur en í stuttu máli:
Fórum norður síðustu helgi. Alltaf gott að komast í rólegheitin fyrir norðan. Ekki skemmir dekur og fínerí hjá tengdó fyrir.
Vorum næstum því búin að drepa bílinn okkar allavega í þriðja skiptið á okkar samleið en honum var bjargað með afþíðun og hlýju. Bílinn sem átti að duga í einn vetur en hefur dugað í þrjá ætlar ekki að gefast upp á okkur.
Fórum á foreldranámskeið
Bumbus er sprækur og hefur það mjög gott. Allavega er hann búinn að koma sér upp stórri bumbu til að búa í og virðist hafa það nokkuð notalegt.
E-ð var það fleira en man ekki hvað ég var búin að skrifa