þriðjudagur, apríl 12, 2005

Já helgin er liðin og vinnan tekin við aftur. Fór í þetta fína afmæli á föstudaginn, fyrst matur og svo partý. Fórum svo á skrall niður í bæ. Ætlaði nú að vera bara róleg og fá mér sem minnst að drekka þar sé ég var búin að vera veik. Áður en ég vissi af vorum við komin á hauga fyllerí enda fríar veigar til boða í afmælinu. Vaknaði svo semi þunn á laugadeginum og mest lítið gert annað en farið var á KFC og Nammiland. Um kvöldið fórum við í bíó á Untergang, góð tilbreyting að sjá Hitler frá þessu sjónarhorni - góð mynd sem ég mæli með og ekki vera að hún sé á þýsku.....

 
hits.