fimmtudagur, apríl 07, 2005

Ég náði mér í þessa fínu pesti á laugardaginn sem setti mig úr leik í 3 daga. Eina góða við hana var að að vigtin sýndi 5 kilóum minna áður en hún kom í heimsókn. Dröslaðist í vinnuna á þriðjudag og í gær í geðveikina þar og endaði með því að verða aftur veik í gærkvöldi. Ákvað að vera heima í dag og reyna jafna mig almennilega, nenni sko ekki að eyða annarri helgi í veikindi. Er búin að vera vinna smá heima það sem þessi #:&%$ vinna getur náð tökum á manni. Vaknaði í morgun alveg að drepast og fyrsta sem ég hugsaði að ég þyrfi að mæta í vinnuna. Tóks að sannfæra mig að það væri nú ekki sniðugt að fara veik í vinnuna og ákvað að vera heima og vinna héðan. Það er alveg ótrúlegt hvað maður kemur mörgu í verk án truflana frá símanum. Er að fara á Markaðstorg SAF á morgun á vegum vinnunar. Það verður fín tilbreyting frá skrifborðinu. jæja Ætla að fara að leggja mig og reyna að sofa slappleikann úr mér.

 
hits.