Fyrsta frí helgin frá því um áramótum frá afmælisveislum og djammi. Helginni var eytt í ekki neitt, sofið fram að hádegi og vaknað án þynnku sem er mikill lúxus. Við Himmi fórum í Kringluna með Ma&pa í gær. Gerðum þar alveg kjarakaup, keypti mér kápu á 1000 kall og svo var haldið í Kópavoginn í bollur. Himmi þurfti að fara í skólann í dag er á einhverju fyrirlestir eða sýningu einhverstaðar. Ég ætla að sjálfsögðu að eyða deginum í leti, ætla skella mér í ljós og svo í bollukaffi til Ásu systur Himma.