mánudagur, febrúar 07, 2005

Er búin að skrá mig í þýskunámskeið hjá Goethe á Íslandi svona til að halda því við sem ég lærði og svo auðvitað til að læra meira. Mér brá svolítið þegar ég mætti í fyrsta tímann í síðustu viku. Við erum 11 í bekk og þetta er allt eldra fólk og frekar sérstakt líka. Ég er næst yngst, sú yngsta er 21 og sá nemandi sem er næstur mér í aldri er 20 árum eldir en ég. Skemmtilegt þar sem ég var einn af ellismellunum þegar ég var í Þýskalandi :o) Þetta fólk sem ég hef kynnst á þessum námskeiðum hefur allt verið mjög merkilegir karektar og sérstakt fólk - Ætli ég sé það þá líka ....thihi fyndið kannski sér annað fólk mig eins og ég sé þetta sérkennilega fólk. Kannksi er ég bara stórfurðulega án þess að vita af því sjálf -hef alltaf talið mig falla frekar mikið inní normið.

Frí helginni lokið og framundan er: vinna, leikhús (fös), afmæli (lau), keilumót Jaka (mán), vinna, Árshátíð Flugfélagsins á AEY (fös-sun) , vinna, sumarbústaðaferð JAKA (fös - sun), vinna og vonandi fríhelgi í lok febrúar.

 
hits.