Var í fríi í dag svo ég ákvað að nýta daginn og fór til Rosenheim í afmælisgjafar leiðangur. Hefði betur getað sleppt því það eina sem ég keypti var jakki handa sjálfum mér og engar afmælisgjafir. Ég var búin að lofa sjálfri mér að kaupa ekki neitt annað en þær afmælisgjafir sem ég þyrfti. Jú ég er nú einu sinni fátækur námsmaður eins og er án launa og LÍN. Get ekki heldur sagt að mér vanti neitt (annað en peninga) og þar af auki er ég með alltof mikinn farangur og yfirvigt er sko ekki ódýr. Nei Herdís þú mátt ekki kaupa neitt, alvega ekki fyrr en í fyrsta lagi þegar þú ert komin til London (hehe, get beðið Palla um að taka farangurinn minn heim og eða bara nýtt sér að vera starfsmaður FÍ). Nei nei laug að sjálfri mér að ég þyrfti að fá þennan jakka og að hann tæki ekkert pláss í farangri svo auðvitað keypti ég hann. Friðaði samviskuna í lokin með því að segja sjálfri mér hvað ég gerði góð kaup, aðein 2.700kr fyrir svartan jakka sem hægt er að nota við hvað sem er hvenær sem er !