Ojj hvað þetta er leiðinilegur dagur ekkert að gera því það er allt lokað á sunnudögum og þar af auki er búið að vera grenjandi rigning í allan dag þannig það er ekki einu sinni að kíkja út í gönguferð. Á morgun er þjóðhátíðar dagur þjóðverja og allt lokað og ekkert hægt að gera þannig að morgundagurinn verður ekkert betri.
Þetta er hálf lúðalegur bekkur sem ég var í :o)
Kennarinn okkar Dr. Frau Hennerman er lengst til vinstri í aftari röðinni, svo kemur David við hliðina á mér hann er frá Ástralíu. Fyndnasti gaur sem ég hef hitt. Hann ætlar að vera í Austurríki næstu 2 árin og vinna í flóttamannabúðum. Melitia er frá Indlandi, hún giftist þýskum manni og er heimavinnandi húsfrú. Suddaporn er frá Tælandi og Bulan líka. Ríkið sendi þær hingað til að fara í háskóla. Þær verða hérna í 6 ár og geta ekki farið til baka til Tælands fyrr en þær eru búnar að læra. Skyldist á þeim að þær eru að fara að læra stjórnmálafræði. Emmanuel sem er í miðjunni í fremri röðinni er frá Frakklandi og er mesta karlremba sem ég hef kynnst og er virkilega leiðinlegur. Duane er lengst til hægri og kemur frá USA. Hann er hefur búið lengst af í Alaska og kennari á eftirlaunum.
Spennandi vita hvernig næsti bekkur verður ! Örugglega bara japanir og tælendingar