Ég lagði af stað til London á föstudaginn og var þar í 2 daga hjá Palla bróður. Flaug til Salzburg á sunnudagsmorgni og tók þaðan lest til Prien í Þýskalandi.
Á mánudaginn fékk ég herbergið mitt í Göthe stofnunnni og byrjaði svo í skólanum á þriðjudag. Er í skólanum frá 8:30 til 13, þannig að maður hefur daginn til þess að dunda sér eitthvað. Prien er reyndar oggulítill staður kannski eins og Akureyri ef til vill minni og ekki helarins mikið um að vera. Ég labbaði allavega um alla bæinn á tveimur dögum.
Á þriðjudag fór ég á stúdentakvöld þar sem nemendurnir hittust. Komast að því að það eru nánast engir nemendur hérna allavega mjög fáir á þessum árstíma og tekur það sinn toll á félagslífinu. Það er víst miklu minna um að vera hérna en venjulega. Allavega sést valla sála á vistinni. Þó svo, þá er ég búin að kynnast nokkru fólki, m.a. frá Ástralíu, usa, Frakklandi og Ekvador. Það er alveg fullt af tævönum og japönum hér sem rotta sig saman, fara sofa snemma og sjást voða lítið annars.
Fór í gönguferð upp í fjall hérna nálægt. Það var æðislegt. Það er búið að vera 25 stiga hiti hérna og sól síðan ég kom. Það reyndar voru þrumur og eldingar í gær en annars er bara sumar veður hérna. Ég leigði mér hjól áðan, 2700 isk fyrir einn mánuð sem er ekki slæmt. Svo er ég að fara í siglingu á morgun um Chiemsee vatnið sem bærinn stendur við.
Tschüss !