Rosalega er allt búið að vera leiðinlegt síðustu daga, er ekki búin að gera neitt..jú ég mæti í vinnuna og geri ekki neitt þar. Það er gjörsamlega ekki neitt að gera í vinnunni og það er ekkert leiðinlegra. Eins og það var brjálað að gera í sumar.
Ég ákvað að rifja upp þýskuna aðeins áður en ég færi. Fékk lánaðan þýskudisk, búin að komast að því að ég man ekkert af því sem ég lærði einu sinni í þýsku en fæ samt alltaf 10 fyrir þýskuæfingarnar þrátt fyrir að ég hafi ekki hugmynd um hvað ég sé að gera. Annað hvort er diskurinn bilaður eða ég bara svona súper klár.........