fimmtudagur, september 02, 2004

Ég vaknaði við hliðina á ókunugum manni í morgun eða ég hélt það allavega. Kannaðist ekkert við hausinn á þeim sem lá í rúminu. Þegar ég nuddaði stýrurnar úr augunum var þetta ekki bara Himmi, Himmi Krimmi. Við fórum til Birtu og Úu í gær og þær voru nýkomnar úr klippingu, búið að raka á þeim hausinn. Himma fannst þær vera svo flottar að hann langaði að verða eins og þær. Þannig að tekin voru upp skæri og klippur og allt tekið af hausnum. Það var sko svaka lubbi sem varð eftir á gólfinum.

 
hits.