Ojj hvað það er búið að vera leiðinlegt í vinnu síðustu vikuna, nánast ekkert að gera og þau litlu verkefni sem eru tilstaðar eru bara einhver leiðindi. Ekki nóg með það að það er leiðinlegt í vinnunni og ekkert að gera þá labbaði ég í vinnuna í ausandi rigningu og hífandi roki í morgun bara af því ég er svo fattlaus. Mætti rennandi blaut í vinnuna. Pabbi hafði hringt í mig áður en ég fór í vinnuna og sagðist ætla að láta mig hafa bílinn því það væri svo ömurlegt veður.Segist ætla bara skilja hann eftir fyrir utan. Ég segi bara já já og klæði mig í regnjakka og held af stað í vinnuna, labbandi. Hringi svo í Pabba í hádeginu og spyr hann hvort hann sé búinn að skilja bílinn eftir fyrir framan flugskýlið. HA ég skyldi hann eftir fyrir framan Eggertsg. í morgun sagði pabbi. . Dísus hvað maður getir verið vitlust. Pabbi kom með bílinn heim til mín um morguninn og ég labba fram hjá bílnum þegar ég fór labbandi í vinnuna.
Birtus og Úus fóru í klippingu í gær og eru víst orðnar voða fína og merkilegar með sig. Þær verða nefnilega svo montnar með sig þegar þær eru búnar að fara í bað eða í klippingu, vita alveg hvað þær eru fínar.