Litli fallegi grísinn okkar er orðinn 6 vikna. Tíminn er ótrúlega fljótur að líða. Hlutirnir eru núna byrjaði að fara í fasta skorður, komin smá regla á gjafir og svefntíma hjá Arngrími. Mesti munur er að hann byrjaði í síðustu viku að sofa frá miðnætti til 6 um morguninn, fram að því svaf hann aldrei nema 3 tíma í einu á næturnar. Það tók sinn toll á heilsuna, svefnleysi til lengri tíma tekur virkilega á.
Ætlaði nú ekki að skrifa færslu um Arngrím. En þar sem lífið snýst litið um annað en Arngrím þá er ekki mikið fréttnæmt og lítið um aðra pælingar en um hvaða bleyjutegund eigi að kaupa. Ég er öll að koma til eftir þessa þrekraun og núna þarf ég bara drösla mér af stað til þess að ná upp þreki og fyrri vexti og janvel betri vexti en þann fyrri hehe. Vona að sumarið fari nú að verða almennilegt svo ég og Arngrímur getum farið að spóka okkur úti. Mér veitti ekki af smá sólskini í andlitið er fölari en ég veit ekki hvað eftir alla þessa inniveru.
2 ummæli:
Gaman að þú skyldir nú rekast á síðuna mína. Manni verður nú hugsað til þín stundum þar sem ég hef ekki séð þig í ég veit ekki hvað mörg ár :D. Innilega til hamingju með drenginn.
Ég sé að síðan þín hefur fengið smá andlitslyftingu. Einfalt og stílhreint, líst vel á.
Bið að heilsa Arngrími Búra og segðu honum að ég kíki á hann við tækifæri. Ég vildi að ég gæti farið að sofa á miðnætti og vaknað klukkan 6!!
B
Skrifa ummæli