þriðjudagur, apríl 17, 2007

Á döfinni

Óléttufréttir fyrir þá sem vilja. Bumbus ætlar líklegast að hanga inni þangað til hann verður sóttur sem verður í lok næstu viku. Ljósan sagði að hann fengi ekki að vera lengur í bumbunni en til 28-29 apríl í lengsta falli. Fer aftur til ljósmóður á þriðjudaginn í næstu viku þar sem framhaldið verður ákveðið ef hann verður ekki búinn að láta sjá sig, sem hann mun líklegast ekki gera. Fer þá í mónitór og fæ tíma í gangsetningu. Þetta hljómar eins og bílaviðgerð eða e-ð.

Ég ætla að hætta að vinna á morgun, finnst það hálf skrýtið. Er að vinna hálfan daginn sem er mjög fínt en fólki finnst að ég ætti nú að segja þetta gott og taka mér smá frí og hvílast.


Ein bollumynd í lokin. Bumbus 40 vikna og ég 28 ára ;O)

 
hits.