Próf á föstudaginn og ég nenni ekki að læra......ojjj hvað þetta er leiðinlegt. Ekki skemmtilegt að eyða helginni í skólalestur og þarf að auki með stíflað nef.
Þar sem það styttist í grísinn þá ætluðum við að fara að huga að bílakaupum. Rauður hefur sannarlega staðið fyrir sínu en hentar ekki alveg fyrir akstur ungabarns. Helst hefði ég viljað bara einhvern lítinn og sætann bíl en okkur vantar bíl sem hægt er að koma vagni fyrir. Ekki gat station bíll orðið fyrir valinu ! Kíktum á einn jeppling á leiðinni í nammiland á laugardag og enduðum með því að kaupa hann. Get ekki sagt að við séum þekkt fyrir að drollast yfirhlutunum og velta þeim of lengi fyrir okkur þegar kemur að svona málum. Fórum heim og tæmdum alla bankareikninga sem við komust í og keyptum 1 stk Suzuki Grand Vitara. Við fórum að sjálfsögðu líka í nammiland.
Ég finn eiginilega til með gamla rauð, litla greyið. Ef einhverjum vantar nokkuð tryggan fararskjót til að komast á milli a til b þá er rauður til boða fyrir sanngjarna og litla þóknun.
Rauður er Toyota Corolla árg. ´91 eða ´92 einungis ekinn 108.000 km. Hefur fengið gott viðhald alla sína lífstíð, ef það væri ekki fyrir ryðið á brettunum þá væri hann eins og nýr. Eina sem er að honum er að það þarf að passa upp á vatnið og olíuna á honum, hann er frekar drykkfelldur.