KF Nörd vs. FH á Laugardagsvellinum
4. október er lokaleikur KF Nörd. Leikurinn er á móti FH og verður á Laugardsvellinum (kl19:30). Þeir sem hafa áhuga á að fara geta fengið fría miða hjá Himma. Látið okkur bara vita ef þið viljið miða (sem fyrst því það þarf að panta þá)
Einnig er leikur n.k. sunnudag............
KF Nörd - Valur
- Sunnudagur kl. 13.00 á Víkingsvelli - allir velkomnir!
Íslensku nördarnir í fótboltafélaginu KF Nörd verða í eldlínunni um helgina.
Á sunnudaginn munu þessar stjörnur úr raunveruleikaþættinum KF Nörd, sem
nú er sýndur á Sýn við miklar vinsældir, mæta sama liðinu og þeir mættu í
fyrsta þættinum, 3. flokki kvennaliðs Vals. Þá töpuðu þeir nördar stórt.
Þurftu aldeils að "lúta í gras" eins og Bjarni Fel myndi orða það, og er
markmiðið því auðvitað að ná fram hefndum.
Leikurinn milli KF Nörd og Vals fer fram á Víkingsvellinum og hefst kl.
13.00 á sunnudaginn kemur.
"Áfram KF Nörd!"