mánudagur, júlí 24, 2006

Fyrsta útilega ársins

Loksins loksins fékk ég að fara í útilegu. Mig hefur langað að fara í útilegu í allt sumar en annað hvort hefur Himmi verið að vinna eða fótboltast um helgar svo lítið hefur verið gert. Við fórum í Þjórsádal með gamla háskólaliðinu ásamt tveimur nýjum stubbum og úr var frábær helgi. Takk takk fyrir samveruna :)

Við Himmi keyptum okkur 3 herbergja hústjald í fyrra og var nú kominn tími til að vígja höllina. Fyrir utan að vera góð svefnaðstaða þá er það þetta fína samkomutjald og hentar vel undir matarboð og bjórdrykkju. Helgin einkenndist af drykkju, áti og leti. Fórum í krokket, sund og sleiktum sólina. Fengum svo frábært veður á sunnudeginum að við fórum og skelltum okkur í busl í Sandá. Hún var alveg hrikalega köld en ótrúlega skemmtilegt.

Í dag er maður eins og tómatur í framan eftir alla þessa útiveru :)

Hér eru nokkrar myndir frá helginni.









 
hits.