USA
Skrapp til Boston um helgina með þremur stelpum í vinnunni. Fórum frá Boston í gærkvöldi og lentum í KEF í morgun klukkan 6:30 og fór svo í vinnuna 8:30. Rétt dottaði í vélinni svo þreytan er farin að segja all svakalega til sín. Hef ekki sofið í sólarhring núna og hlakka ofboðslega að fara heim eftir vinnu.
Þetta var aðallega verslunarferð en ótrúlegt þá hélt ég mig við budgetið sem ég setti mér. Hafði aldrei farið áður til Bandaríkjana. Boston er reyndar ekki mikið Amerkansinnuð borg. Upplifði mig ekki að ég væri í Bandaríkjunum. Það sem minnti mann á að þetta var Bandaríkin var hversu stórt allt var, búðirnar, matarskammtarnir og fatastærðirnar. Keypti föt á Himma í X-Small (notar venjulega M eða L) og það litla sem ég fann á mig sem passaði var flest allt í XXX-Small (nota S eða M). Hef aldrei haft áhuga að fara til Bandaríkjana áður en smitaðist samt af einhverju þarna og er alveg til að sjá núna meira af landinu.