laugardagur, apríl 08, 2006

Eitthvað lítið hefur gerst á þessari síðu s.l. mánuð. Ég flaug norður á fimmtudaginn í snjóinn, komum svo keyrandi suður í gær. Alltaf jafn fínt að koma til Akureyrar þó svo stoppið hafi verið stutt, bara ein nótt. Eftir viku fáum við loksins íbúðina okkar :O)Seljendurnir sögðu að það gæti verið að við gætum fengið hana e-ð fyrr en þar sem ekkert hefur heyrst frá þeim þá verður líklegast ekki af því. Samkvæmt kaupsamningi þá skal afhenda hana eigi síður en um hádegi þann 15. apríl sem er næsta laugardag. Hlakka alveg óendanlega til. Loksins eignumst við heimili. Ég er eiginlega búin að vera heimilislaus s.l. 3 ár. Hvorki átt heima í Víðigrund né á Eggerstgötu. Loksins get ég farið að taka upp úr kössunum sem hafa verið lokaðir með öllu dótinu mínu þessi ár.

 
hits.