laugardagur, febrúar 04, 2006

Sprikl 3 x í viku

Já ótrúlegt en satt þá hefur mér tekist að drösla sjálfri mér í ræktina núna í rúman mánuð. Kom sjálfri mér óvart hvað það hefur verið lítið mál að mæta kl 7:30 á morgnana í sprikl. Reyndar líður manni alveg ótrúlega vel eftir tímann og mætir alveg óendalega freskur í vinnuna, kannski það hafi eitthvað segja um það að ég mæti alltaf aftur í næsta tíma. Það er alveg hræðilegt hvað þetta sprikl hefur mikil áhrif, eitt prins polo og þú ert kominn með bullandi samvisku. Ekkert sukk og svínarí lengur þar sem dottið er ofan í nammi poka - núna er það bara vatn og ávextir yfir daginn. Fengum okkar áskrift af ávaxtabíllnum í vinnunna og keyptum okkur meira að segja blandara líka svo við gætum gert búst og verið ofurhollar. Veit samt ekki hvort hollustan haldist til lengdar þessi lífstíll hefur aldrei átt við mig en hann er ágætur meðan hann endist.

 
hits.