Ég fór í náttafatapartý á föstudag með vinnunni. Stelpupartý með fótabaði, snyrtivöru kynningu, pizzum, nammi og snakki. Skemmtileg tilbreyting. Meðan ég fékk rosa fínar tær þá sat Himmi bara aleinn heima og lét sér leiðast. Ég bætti honum það upp með því að fara með hann í búðir á laugardeginum. Tókum heljarins hring. Byrjuðum á að fara í IKEA þar sem við fjárfestum í jólapappír og borðum. Fyrst við vorum á þessu svæði fórum við í Expert í straujárnaskoðun. Ekki gott ástand á fötum heimilisins eftir að ég er búin að missa straujárnið í tvígang í gólfið og eyðileggja það endalega í seinna skiptið. Ekki var vöruúrvalið uppá marga fiska í expert svo við heldum af stað á næsta stað í Nýju Blómavals og Húsasmiðjubúðina. Rosa flott búð, helling af jólaskrauti og gjafavörum. Fórum svo í Smáralind og kíktum í nýju BT búðina og keyptum Popp punkt spilið á 999 krónum. Fórum svo Smáratorg í frekari straujárnsleiðangur sem endaði í Elko þar sem við fjárfestum í 5.000 króna straujárni......Eftir reynslu mína af 995 krónu straujárninu mínu þá fannst okkur alveg eins gott að kaupa eitt sem virkar almennilega. Svo nú get ég byrjað aftur á straumaníunni minni :o) Fórum svo til Ásu og Sigga þar sem farið var í popp punkt og kvöldinu svo lokið með pönnuköku heimsókn til Valgerðar og Halldórs.
Þétt skipulagður laugardagur en sunnudagurinn varð ekki mikið spennandi, hangs hjá Birtu og Úu og kvöldmatur og svo meira hangs.