fimmtudagur, september 22, 2005

klukk klukk klukk - hvaða vitleysa er þetta

Eitthvað brjálað klukk að ganga í gengum bloggsíðurnar.....ætli ég verði ekki að vera eins og aðrir og taka þátt í því fyrst ég var nú klukkuð af henni Gunnhildi Femínista.

Hér eru mín fimm atriði:

1. Ég er rosalegur nammigrís, get sjaldan staðist nammi og hætti oftast ekki fyrr en pokinn er tómur.


2. Ég geng ekki beint. Geng alltaf til hægri og það er ekki vegna þess að ég sé hægri sinnuð. Mjaðmagrindin á mér er skökk til hægri. Til að toppa það þá er ég innskeif á vinstri og útskeif á hægri. Ef þú labbar við hliðina á mér hægra megin þá geng á þig - hversu gallaður getur maður verið.

3. Ég er hæfileikalaus, get ekki blístrað, get ekki blikkað öðru auganum svo má lengi telja.

4. Mér finnst kolsýrt vatn og sódavatn virkilega vont.

5. Er rosalega matvönd, ekki að ég vilji vera það get bara engan vegin hætt þessari vitleysu að geta ekki borðað hvað sem er.

 
hits.