Já enn önnur helgin liðin. Tók mér frí eftir hádegi á föstudaginn þannig að þetta var bara ágætlega löng helgi. Á föstudaginn var staffa partý hjá sölu og markaðsdeildinni. Hittumst í heimahúsi í Hafnarfirði þar sem við pöntuðum mat og duttum í það. Seinna um kvöldið var svo brunnað á Players í Kópavogi á ball með Brimkló. Held að ég hafi aldrei upplifað annað eins. Búið var að taka frá borð fyrir okkur þar sem stóð á stórum stöfum Flugfélag Íslands. Þegar við gengum inn í salinn var starað á okkur með stórum augum og ekki vantaði athyglina frá köllunum sem voru þarna þetta kvöld. Komust seinna að því að karlpeningurinn var búinn að bíða spenntur eftir að við kæmum eftir að séð borðin merkt FÍ. Þeir heldu að við værum flugfreyjur og urðu því pínu vonsviknir þegar þeir heyrðu annað. Þó svo þá vantaði ekki röðina á borðið hjá okkur þar sem þeir biður eftir að fá að bjóða okkur í glas og í dans. Ellismellirnir í Brimkló voru bara ágætir. En liðið sem var þarna var stórskrýtið.
Tengdafjölskyldan var í Reykjavík um helgina, Ása amma áttir 80 ára afmæli á laugardaginn þannig að mestri helginni var eytt með fjölskyldunni.
Afrek helgarinna var í gær þegar við Himmi hjóluðum 25 kílómetra.