mánudagur, ágúst 29, 2005

Tvö ár

Ég og Himmi eigum 2 ára afmæli í dag. Skrýtið hvað tíminn líður hratt sem þýðir ekkert annað en að við erum að eldast. Áttaði mig líka á því að ég eftir rúmt hálft ár verð ég orðin 27 ára. Planið hjá mér hefur lengi verið að fara í framhaldsnám eftir BSinn og var áætlað að það nám hæfist árið 2004 eitthvað hefur það frestast þar sem ég hef ekki enn byrjað í mastersnáminu. Núna ætla ég að stefna að því að setjast á skólabekk aftur haustið 2006 og er að skoða nám og skóla eins og er. Þetta er ansi erfitt val en vonandi verð ég búin að finna eitthvað sem mig langar í fyrir næsta vor. Verð orðin 30 ára þegar ég klára loksins námsferilinn í bili og líklegast allslaus og skuldum vafin gaman gaman :o)

 
hits.