miðvikudagur, ágúst 24, 2005

Launaviðtal

Eftir síðasta launaseðil ákvað ég að ég þyrfti nú að gera eitthvað í mínum launamálum. Er búin að vera hundóánægð með launin mín síðan ég byrjaði án þess að geta gert nokkuð við því annað en að sætta mig við það. Búið var að tjá mér að ég gæti ekki verið með neinar kröfur á láglauna stétt eins og ferðaþjónustan væri og svo væri kjarasamningar lausir og blablabla. En þetta sumar fyllti alveg mælinn. Sagðist vilja láta endurskoða launin mín. Sérstaklega þar sem ég hef verið að drukkna í vinnu og verkefnin eru hreinlega ekki vinnaleg fyrir þessi laun. Gæti alveg eins ráðið mig í einhverja búðarvinnu og ekki þurft að hafa áhyggur af neinu eða borið neina ábyrgð á nokkru. Fékk svo tölvupóst í dag þar sem ég var boðuð í launaviðtal. Bíð spennt eftir hvernig sá fundur fer. Allavega eins og staðan er í dag þá hefur þessi blessaða háskólagráða mín ekki fært mér neitt og þá alls ekki hærri laun.

 
hits.