þriðjudagur, maí 17, 2005

Við skötuhjú skelltum okkur til Akureyrar um helgina, flugum á laugardagsmorgni í sólina. Dekur og leti hjá tengdó, alls ekki slæmt. Langaði eiginlega ekki aftur heim, sérstaklega ekki í vinnuna. En maður lætur sig hafa það þar sem það er ekki nema ein og hálf vika í sumarfrí víííí :o)Himmi fer til Eistlands á föstudaginn og ég flýg til Helsinki 27. maí. Búin að græja allt, flugmiða, interrail miða og Ipod fyrir tónlist og myndir. Fjárfestum í i-pod photo til að setja digitalmyndir á í ferðinni. Sé ekki fram á blogg á næstunni þar sem sumartörnin er komin á fullt í vinnunni, ekki einu sinni tími fyrir hádegsmat þessa daga hvað þá eitthvað hangs á netinu og ekkert annað en yfirvinna næstu daga.
Lifið heil og áfram Ísland í Júróvisíon.

 
hits.