föstudagur, mars 04, 2005

Lake Mývatn

Fór til Akureyrar í gær með hóp af starfsfólki ferðaskrifstofa í REK til að kynna Mývatn og Mývatnsferðina sem við bjóðum upp á með SBA - NL. Keyrðum beint í Mývatnssveit eftir að hafa lent um hádegi á AEY flugvelli eftir mjög skemmtilegt aðflug. Lentum eins og vel hristir kokteilar. Kíktum í heimsókn á hótel Sel og fengum hádegismat og kynningu frá manni sem er með brjálað hugmyndaflug allavega var mjög gaman að hlusta á hann Ingvar. Heimsóttum svo Vogafjós sem er kúabú með kaffihúsi í hlöðunni. Á meðan þú færð þér kaffi þá getur þú horf á kýrnar í gegnum glervegg. Kíktum líka í Jarðbað og á Hótel Reynihlíð í kvöldferð. Þetta var alveg meira háttar ferð, ekki leiðinlegt að vera túristi á Íslandinu hinu góða. Komum svo heim um 22 vel nærð af sveitaloftinu og með hakk í poka sem var gjöf frá vogafjósi - hehe

 
hits.