fimmtudagur, mars 17, 2005

Er þett málið í dag....?

Uppskrift að fullkomnu lífi?

Fyrst sæki ég um að komast að í þættinum You are what you eat og kemst þá að
því að matarræðið er snarbilað, en eftir að kellingin fer þá held ég samt
bara áfram að éta og fitna meira. Þá fer ég í megrunarkeppnina The Biggest
Loser og næ af mér nokkrum kílóum. Nú til að fá final touchið á þetta þá fer
ég í The Swan og fer í nokkrar lýtaaðgerðir og fitusog, ekki veitir af.. en
í lokaþættinum þá kemst ég ekki áfram í fegurðarsamkeppni the Swan, þannig
að þetta hefur ekki virkað alveg. Þá fer ég í Extreme Makeover og læt taka
mig ærlega í gegn, skipti bara um andlit og sýg alla fitu úr líkamanum.

Þá er ég heldur betur orðin flott og fer í Americas Next Top Model þáttinn
og geri gott þar.. en tapa. Nú er ég orðin soldið fúl og einmana, á engan
kall nebblega. Best að fara í Bachelorette og ná mér í einn ríkan og
myndarlegan. Geri það, en þegar þáttaröðin og það er búið, vantar einhverja
spennu í sambandið, þannig að við förum í Temptation Island... en þar endar
það með að við hættum saman því við héldum bæði framhjá. Þá langar mig bara
að vera dáldið sjálfstæð og verða rík..

Þannig að ég fer í Survivor, þrauka alveg í 36 daga en lendi í 3. sæti ohhh
ég fæ ekki einu sinni 100 þús dollara.. fer heim, alveg í rusli. En ég er
ennþá sæt eftir lýtaaðgerðirnar og sílíkonbrjóstin hanga ennþá uppi.. og þar
sem mig langar aftur í kærasta, þá skrái ég mig í Djúpu laugina.. næ mér þar
í einhvern lúða sem býr í ljótri íbúð í Fellunum og er frekar subbulegur. En
það er allt í lagi, ég hringi bara í vini mína í Queer eye for the Straight
Guy og þeir koma og henda manninum mínum í klippingu og kaupa ný föt á hann,
rí-dekkorreita svo íbúðina, allt voða flott og hann biður mig um að giftast
sér í lok þáttarins, sem ég geri.

Við förum þá auðvitað með brúðkaupið í Brúðkaupsþáttinn Já og vinnum svo
ferð í Karabíska hafið, voða rómó. En á skemmtiferðaskipinu þá verð ég
ólétt.. eignast svo krakka og eftir 2 ár er hann farinn að stjórna öllu,
þannig að ég hringi í The Nanny og fæ hana til að kenna okkur að ala upp
krakkann og láta hann ekki ráða öllu.

Nú er allt komið í drasl aftur.. Þannig að ég hringi bara í Heiðar vin minn
Snyrti og fæ hann að koma með þáttinn Allt í drasli og taka til... vá hvað
það verður allt fínt hjá okkur! Þá er nú kominn tími til að hringja í Völu
og við komum í Innlit Útlit, en við þurfum svo að stækka við okkur því að
það er annað barn á leiðinni, þannig að við förum bara með íbúðina í þáttinn
Allt undir einu þaki, seljum hana og kaupum stærri.

Árin líða og þetta endar allt með því að ég er búin að skilja við kallinn
sem hélt framhjá mér, lýtaaðgerðirnar sem voru gerðar fyrir 15 árum komnar í
klessu, ég er ljót, feit, einstæð 2ja barna móðir sem á ekki neitt.. þannig
að ég fer bara í Fólk með Sirrý og væli yfir þessu öllu saman!

 
hits.